Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ, fimmtudaginn 2. mars nk., kl. 16:00.
Aðalfundur Marel hf. 2017
08 Feb 2017
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins.
- Skýrsla um framkvæmd starfskjarastefnu.
- Tillaga um kaupréttarkerfi.
- Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.
- Önnur mál, löglega borin fram.
Fundarstörf munu fara fram á ensku.
Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, þ.e. fyrir kl. 16:00 laugardaginn 25. febrúar.
Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en tíu dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16:00 mánudaginn 20. febrúar.
Á aðalfundarvef félagsins (www.marel.com/agm) er að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t. frekari upplýsingar um rétt hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og leggja fram ályktunartillögur fyrir fundinn, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins, ársreikning félagsins fyrir árið 2016, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 8. febrúar 2017, umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn.
Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða gerðar aðgengilegar hluthöfum sjö dögum fyrir fundinn á framangreindum aðalfundarvef félagsins sem og á skrifstofu félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ.
Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang. Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15:30.
Stjórn Marel hf.
Get in touch
Our dedicated team is here to help and answer any questions you may have. Please complete the form, and we’ll get back to you as soon as possible. We look forward to hearing from you